Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Fréttir, um starfsemina og annað gagnlegt fyrir viðskiptavini

Smáskipanám - alltaf jafn vinsælt
30. janúar 2012
Smáskipanám vorið 2011 Þriðjudaginn 31. janúar kl. 20:00 verður kynning á smáskipanámi sem fyrirhugað er að hefjist hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða í febrúar. Smáskipanám er það sem áður var kallað pungapróf og hefur það alltaf notið mikilla vinsælda hjá Fræðslumiðstöðinni. Kynningin er öllum opin og eru áhugasamir hvattir til að mæta. meira
Kynning á raunfærnimati
24. janúar 2012
imageFimmtudaginn 26. janúar n.k. verður kynning á raunfærnimat í iðngreinum og nokkrum starfsgreinum.
Á fundinum verður almenn kynning á raunfærnimati, hvernig það fer fram, hvaða greinar það nær yfir og hvað tekur við að matinu loknu. Kynningin verður hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða, að Suðurgötu 12 á Ísafirði fimmtudaginn 26. janúar n.k. og hefst kl. 20 meira
Náttúran – þorskurinn og þjóðin.
19. janúar 2012
imageFimmtudaginn 19. janúar verður þriðji fyrirlesturinn í röð fyrirlestra á vegum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, Náttúrstofu Vestfjarða og Rannsóknaseturs Háskóla Íslands, um náttúrufræðileg efni.

Í þessum fyrirlestri mun dr. Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, líffræðingur og forstöðumaður Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum stikla á stóru í sögu þorskveiða við Ísland. meira
Kynning á Grunnmenntaskóla
19. janúar 2012
Nemendur í grunnmenntaskólanum fyrir nokkrum árum.
Fimmtudaginn 26. janúar kl. 18:00 verður opinn kynningarfundur hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða á námsskrá sem nefnist Grunnmenntaskólinn. Allir velkomnir og heitt á könnunni! meira
Menntaþing á Ströndum
12. janúar 2012
Kristín Sigurðardóttir, starfsmaður Fræðslumiðstöðvarinnar á Ströndum.
Fræðslumiðstöð Vestfjarða tekur þátt í menntaþingi sem haldið er í Strandabyggð í dag, fimmtudaginn 12. janúar. Þar verður fjallað um mikilvægi þroska og menntunar fólks á öllum aldursstigum. Þingið er liður í 100 ára afmæli skólahalds á Hólmavík. meira
Fjölbreytni í fyrirrúmi
11. janúar 2012
Dagskrá janúar og fyrri hluta febrúar hjá Fræðslumiðstöðinni er að taka á sig mynd og kennir þar ýmissa grasa. Tungumál, tölvur, bókhald og skjalavarsla, styrkumsóknir, námstækni, víravirki, grunnmenntaskóli, smáskipanám og raunfærnimat. meira
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is