Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Dagur íslenskrar tungu á Flateyri

image16. nóvember er dagur íslenskrar tungu. Í tilefni af því verður dagskrá í Flateyrarkirkju í samvinnu Fræðslumiðstöðvarinnar, Grunnskóla Önundarfjarðar, kirkjunnar og Leikfélags Flateyrar.

Boðið verður upp á fræðslu um Jónas Hallgrímsson og upplestur úr verkum hans. Unglingar munu lesa ljóð, Katrín Guðjónsdóttir syngur einsöng, Heiðrún Tryggvadóttir flytur stytta kynningu á Jónasi Hallgrímssyni ungum og Huldar Breiðfjörð les úr nýjum barnabókum.

Dagskráin hefst kl. 17 og eru allir velkomnir. 

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is