Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Konfekt

Konfekt er órjúfanlegur hluti jólanna í hugum margra.

Nú er upplagt tækifæri til þess að læra að gera sitt eigið konfekt því þriðjudaginn 22. nóvember n.k. stendur Fræðslumiðstöð Vestfjarða fyrir námskeiði í konfektgerð. Námskeiðið verður haldið í Grunnskóla Bolungarvíkur og hefst kl. 18:00.

Á námskeiðinu mun Halldór Karl Valsson matreiðslumeistari kynna leyndardóma konfektgerðarinnar. Þátttakendur læra að gera 3-4 mismunandi konfektmola og taka afraksturinn með sér heim.

Sama námskeið var haldið á Ísafirði fyrir tveimur árum og á Þingeyri í fyrra og tókst mjög vel í bæði skiptin.

Skráning á námskeiðið er á vef Fræðslumiðstöðvarinnar www.frmst.is eða í síma 456 5025.

Tengt efni
Konfektgerð - Bolungarvík
Þátttakendur kynnast leyndardómum konfektgerðarinnar, læra að gera 3-4 mismunandi konfektmola og taka afraksturinn með sér heim.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is