Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Náms- og starfsráðgjafi í Reykhólasveit

Björn Hafberg, náms- og starfsráðgjafi verður í Reykhólasveit miðvikudaginn 31. október og fimmtudaginn 1. nóvember 2007.

Björn mun heimsækja vinnustaði, vera með einstaklingsviðtöl og halda námskeið til að kynna náms- og starfsráðgjöf.
Einstaklingsviðtölin verða á skrifstofu Reykhólahrepps.
Námskeiðið verður í Reykhólaskóla miðvikudaginn 31. október, kl. 20 – 22. Þar mun Björn kynna hvaða aðstoð náms- og starfsráðgjafi getur veitt, gefa fólki kost á að fara í áhugasviðsgreiningu og finna hvar styrkleikar þess liggja.
Ráðgjöfin og námskeiðið er fólki að kostnaðarlausu.

Námskeiðið og einstaklingsviðtölin eru tilvalin fyrir þá sem vilja skoða stöðu sína og möguleika. Eða bara prófa þetta sér til gamans.

Notið tækifærið og skráðið ykur hjá Fræðslumiðstöðinni í síma 456 5025 eða hjá Birni Hafberg í síma 899 0883.

Tengt efni
Einhverfa og skyldar þroskaraskanir
Námskeiðið er ætlað aðstandendum og starfsfólki á sviði uppeldis og menntunar sem sinna þjálfun og meðferð barna með einhverfu og skyldar þroskaraskanir. Markmiðið er að efla skilning og þekkingu fagfólks á þörfum barna með einhverfu og auka gæði þeirrar þjónustu sem þegar er veitt. Efla færni til að byggja upp markvissa íhlutun.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is