Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Náms- og starfsráðgjöf á norðanverðum Vestfjörðum

image

Björn Hafberg, náms- og starfsráðgjafi verður hjá Fræðslumiðstöðinni á Ísafirði mánudaginn 1. desember til föstudagsins 5. desember. Björn mun heimsækja vinnustaði á svæðinu og bjóða einstaklingsviðtöl.

Tímapantanir í einstaklingsviðtal er hjá Fræðslumiðstöðinni í síma 456 5025.

Fimmtudaginn 4. desember verður Björn með námskeiðið eða fund þar sem hann mun kynna hvaða aðstoð náms- og starfsráðgjafar geta veitt, gefa fólki kost á að fara í áhugasviðsgreiningu og finna hvar styrkleikar þess liggja. Námskeiðið verður hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða að Suðurgötu 12 á Ísafirði og stendur á milli kl. 18 og 19.

Fólk er hvatt til að nota tækifærið og heimsækja náms- og starfsráðgjafann.
Ráðgjöfin og námskeiðið er fólki að kostnaðarlausu.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is