Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Tónlist frá ýmsum hliðum - óperurnar

Júlís Karl Einarsson bariton söngvari kynnir undraveröld Óperunnar í Edinborgarhúsinu kl. 20 - 22 fimmtudagskvöldið 10. nóvember n.k.
Er þetta önnur kynningin í tónlistarröðinni Tónlist frá ymsum hliðum, sem Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar og Fræðslumiðstöð Vestfjarða gangast fyrir.
Í kynningu sinni mun Júlíus Karl fara yfir það hvernig óperan varð til sem listform og hvernig hún hefur dafnað og þróast í gegnum aldirnar. Mismunandi leiðir verða kynntar til að nálgast óperur og hafa gaman af þeim. Þá verður stutt kynning á raddtegundum söngvara og hljómsveitaskipan með mynd- og tóndæmum.

Fyrsta kynningin í þessari námskeiðaröð var á sönglögunum okkar þann 13. október s.l. með þeim Guðrúnu Jónsdóttur söngkonu og Margréti Gunnarsdóttur píanóleikara.

Tónlistarröðin Tónlist frá ymsum hliðum, er röð stuttra alþýðlegra námskeiða um tónlist.  Námskeiðin eru óháð hvert öðru og koma að tónlistinni frá ýmsum hliðum.
Markmið með þessari námskeiðaröð er að fólk geti notið og fræðst um tónlist í afslöppuðu umhverfi við kaffi og kertaljós.

Þátttökugjald er 2.500 kr á mann, en 1.500 kr fyrir námsfólk og eldri borgara.
Ekki er nauðsynlegt að fólk skrái sig fyrirfram.

Júlíus Karl hefur verið áhugamaður um óperur frá barnsaldri.
Hann lærði söng við Söngskólann í Reykjavík og lauk framhaldsprófi frá Tónlistarháskólanum í Vínarborg árið 2011.
Hann er í stjórn Vinafélags Íslensku óperunnar.
Sambýliskona Júlíusar Karls er Elín Smáradóttir frá Ísafirði.
image

Tengt efni
Tónlistin frá ýmsum hliðum - Ó, þessar óperur - Ísafjörður
Júlíus Karl Einarsson fjallar um heim óperunnar. Námskeiðið er hluti af röð stuttra námskeiða um tónlist sem Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar og Fræðslumiðstöð Vestfjarða standa saman að.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is