|
||||
|
|
Vika símenntunar var haldin 24. til 30. september s.l. Vikan er átaksverkefni til eflingar símenntun og hefur verið haldin undanfarin ár. Samstarfsaðilar á Vestfjörðum voru, auk Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, Félag opinberra starfsmana á Vestfjörðum, Verkalýðsfélag Vestfirðinga og Vinnumálastofnun. Þema vikunnar var að þessu sinni læsi og lestrarörðugleikar.
Samstarfsaðilar heimsóttu vinnustaði og hittu fólk á förnum vegi á Bíldudal, Tálknafirði, Patreksfirði, Reykhólum og Hólmavík. Þar voru einnig haldin stutt ókeypis námskeið á kvöldin í upplestri og framsögn. Var efnið valið með hliðsjón af þema vikunnar. Kennarar á námskeiðunum voru þær Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir leikkona og Mariola Kowalczyk leik- og söngkona.