Nemendur í Landnemaskólanum og íslenskunámi fyrir útlendinga borða saman.
10. desember 2008Nemendur í Landnemaskólanum á Patreksfirði og nemendur í íslenskunámi fyrir útlendinga hittust síðastliðið laugardagskvöld og borðuðu saman. Á boðstólnum var íslenskt hangikjöt og reykt svínakjöt, pólskar pylsur vafðar í beikon, þorskur í ediki, svínahakk í kartöflubollum, tvær gerðir af saltiskbollum á portúgalskan hátt og fleira og fleira.
Námskeiðinu Viðhald og endurbætur eldri húsa frestað um óákveðinn tíma
5. desember 2008Námskeiðinu
Viðhald og endurbætur eldri húsa verður frestað um óákveðinn tíma
Stefnt er að því að halda námskeiðið á nýju ári. Það verður auglýst þegar nær dregur.
Náms- og starfsráðgjöf á norðanverðum Vestfjörðum
1. desember 2008
Björn Hafberg, náms- og starfsráðgjafi verður hjá Fræðslumiðstöðinni á Ísafirði mánudaginn 1. desember til föstudagsins 5. desember. Björn mun heimsækja vinnustaði á svæðinu og bjóða einstaklingsviðtöl og halda námskeið.
Íslenska fyrir útlendinga á Patreksfirði
31. október 2008Á Patreksfirði hófst nám í íslensku fyrir útlendinga um miðjan október. Námið fer fram í Þekkingarsetrinu Skor og er það liður í að námsumhverfi sé ekki það sama og vinnuumhverfi.
Margir nýttu sér námskeið um styrkumsóknir
30. október 2008Ágætis þátttaka var í námskeiði um styrkumsóknir sem Fræðslumiðstöðin og Jón Páll Hreinsson stóðu fyrir á mánudag og miðvikudag sl. Fjallað var um umsóknarferlið og sjóði sem mögulegt er að leita styrkja í. Kennt var í húsnæði Fræðslumiðstöðvarinnar á Ísafirði en sent með fjarfundabúnaði til Hólmavíkur.
Starfsemi vetrarins hafin
11. ágúst 2008
Eftir gott sumarfrí er starfsfólk Fræðslumiðstöðvarinnar komið á fullt við að vinna að Námsvísi vetrarins. Eru komin drög að honum, en enn á eftir að hnýta nokkra lausa enda áður en hann kemst í prentun. Vonumst við til að hann geti farið í dreifingu fyrir mánaðamót.
Að venju eru endurmenntunarnámskeið fyrir grunnskólakennara á dagskrá hjá okkur í ágúst og hefst fyrsta námskeiðið á morgun, þriðjudaginn 12. ágúst. Fjallar það um jákvæð samskipti og verður fjarkennt til Patreksfjarðar.
Að öðru leyti gengur undirbúningur fyrir veturinn vel og nýja starfsfólkið búið að koma sér vel fyrir og allir tilbúnir fyrir góðan vetur.
Hvað getur náms- og starfsráðgjöf gert fyrir þig?
24.11.2007
Björn Hafberg, náms- og starfsráðgjafi verður með námskeið til að kynna náms- og starfsráðgjöf þriðjudaginn 27. nóvember, n.k.
Námskeiðið verður hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða að Suðurgötu 12 á Ísafirði og hefst kl. 20 og stendur til kl. 22. Þar mun Björn kynna hvaða aðstoð náms- og starfsráðgjafi getur veitt, gefa fólki kost á að fara í áhugasviðsgreiningu og finna hvar styrkleikar þess liggja.
Starf á Patreksfirði
19.11.2007
Fræðslumiðstöð Vestfjarða auglýsir eftir starfsmanni á Patreksfirði. Starfsmaðurinn verður hluti af teymi Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, sem sinnir og þróar fullorðinsfræðslu á Vestfjörðum. Aðaláhersla í starfinu verður á Vesturbyggð og Tálknafjörð.
Að veita framúrskarandi þjónustu
13.11.2007
Hér er um að ræða framúrskarandi námskeið fyrir alla þá sem vilja veita framúrskarandi þjónustu.
Námskeiðið verður haldið mánudaginn 19. nóvember kl. 18 -22. Leiðbeinandi á því er Þórhildur Þórhallsdóttir, þjálfari og leiðbeinandi hjá Þekkingarmiðlun.
Náms- og starfsráðgjafi í Reykhólasveit

Björn Hafberg, náms- og starfsráðgjafi verður í Reykhólasveit miðvikudaginn 31. október og fimmtudaginn 1. nóvember 2007.
Vika símenntunar 2007
Vika símenntunar var haldin 24. til 30. september s.l. Vikan er átaksverkefni til eflingar símenntun og hefur verið haldin undanfarin ár. Samstarfsaðilar á Vestfjörðum voru, auk Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, Félag opinberra starfsmana á Vestfjörðum, Verkalýðsfélag Vestfirðinga og Vinnumálastofnun. Þema vikunnar var að þessu sinni læsi og lestrarörðugleikar.
Grunnmenntaskólinn - Hólmavík
08.10.2007
Í kvöld mánudaginn 8. október kl. 20 verður haldinn kynningarfundur í Grunnskólanum Hólmavík um Grunnmenntaskólann.
Þrjátíu rúmlesta skipstjórnarnám og vélgæsla.
Mánudaginn 1. október kl. 20.00 hefst 30 rúmlesta skipstjórnarnám hjá Fræðslumiðstöðinni, Suðurgötu 12.
Laugardaginn 29. september kl. 09.00 hefst vélgæslunámskeið með Guðmundi Einarssyni í verkmenntahúsi Menntaskólans á Ísafirði.
Vika símenntunar 2007
20.09.2007
Vika símenntunar verður haldin dagana 24.—30. september n.k.. Af tilefni vikunnar munu þeir sem að framkvæmd hennar koma, heimsækja fyrirtæki og stofnanir á Vestfjörðum og kynna starfsemi sína eins og sjá má nánar í fréttinni.
Námsvísir vetrarins.
19.09.2007
Nú á námsvísir vetrarins að vera kominn inn um lúgur vestfirðinga. Vonandi verður fólk duglegt að skrá sig svo það verði líf og fjör hjá Fræðslumiðstöðinni í vetur.

Eins og sést á meðfylgjandi mynd er oft glatt á hjalla, en myndin er tekin á skyndihjálparnámskeiði fyrir starfsfólk í ferðaþjónustu.
Betri tímastjórnun
10.09.2007

Fimmtudaginn 20. september verður námskeið í Betri tímastjórnun með Ingrid Kuhlman. Frábært námskeið fyrir önnum kafið fólk sem vill læra að stjórna tíma sínum betur.
Námskeiðið hefur verið fellt niður.
Námsvísir vetrarins í næstu viku
07.09.2007
Námsvísir vetrarins 2007 - 2008 kemur út í næstu viku. Í honum er fjöldi námskeiða og eru þau öll komin á netið og hægt að skrá sig þar.
Nýr vefur
06.09.2007
Fræðslumiðstöð Vestfjarða var nú í dag, fimmtudaginn 6. september 2007, að opna nýja heimasíðu.

Meðfylgjandi mynd er af forstöðumanni að reyna að læra á nýju heimasíðuna.
Endurmenntunarnámskeið
Grunnskólakennarar á Vestfjörðum iðnir við að sækja endurmenntunarnámskeið hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða.
Námskeið í skyndihjálp fyrir fólk í ferðaþjónustu
Fræðslumiðstöð Vestfjarða fékk styrk frá Starfsmenntaráði til að halda 3 námskeið fyrir fólk í ferðþjónustu. Námskeið um þjónustugæði og kvartanir var haldið fyrir stuttu og nú er miðstöðin að kanna hvort unnt sé að halda námskeið í skyndihjálp.
Vellukkuð þjónustunámskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða hefur undanfana daga haldið námskeiði fyrir fólk í ferðaþjónustu, sem kallast Þjónustugæði og kvartanir. Námskeiðið var haldið í samstarfi og með styrk frá Ferðamálasamtökum Vestfjarða og Starfsmenntaráði.
Þjónustugæði og kvartanir.
Fræðslumiðstöð Vestfjarða stendur fyrir námskeiði, sem kallast Þjónustugæði og kvartanir. Námskeiðið er haldið í samstarfi og með styrk frá Ferðamálasamtökum Vestfjarða. Starfsmenntaráð veitir einnig styrk til námskeiðsins.
Endurmenntun kennara og námskeið fyrir ferðaþjónustu.
Þótt sumarið sé rólegur tími í fullorðinsfræðslunni þá eru allnokkur námskeið fyrirhugað í sumar.