Mikilvægt að skrá sig!
Fræðslumiðstöð Vestfjarða vill brýna fyrir fólki mikilvægi þess að skrá sig hafi það áhuga á að sækja námskeið.
Það er ekki nóg að mæta bara í fyrsta tímann því við skipulagninu námskeiða er gert ráð fyrir lágmarksfjölda þátttakenda til þess að námskeið standi undir sér en náist ekki lágmarksfjöldi er námskeiðinu frestað eða því aflýst.
meira
Viðbótarnám í vélstjórn
18. maí 2013
Í dag lauk hópur manna fyrri önninni í viðbótarnámi í vélstjórn, sem Fræðslumiðstöðin og Menntaskólinn á Ísafirði standa fyrir á sem hafa lokið grunnnámskeiði í vélgæslu, en þurfa meiri réttindi
meira
Smiðja á Bíldudal
18. maí 2013
Fimmtudaginn 16. maí var lokahátíð og útskrift á Bíldudal í smiðjunni um hönnun og handverk. Þar sýndu 13 manns afrakstur vinnu sinnar síðastliðnar 4 vikur. Kynntu þær ótrúlega fjölbreyttar hugmyndir, sem allar snérust að einhverju leyti um aðalbláber
meira
Viltu sigla en vantar réttindi?
16. maí 2013
Fræðslumiðstöð Vestfjarða býður upp á undirbúningasnámskeið og próf að því loknu sem veitir siglingaréttindi á skemmtibáta allt að 24 m á lengd. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 4. júní. Nú er tíminn til að skrá sig!
meira
Víravirki
13. maí 2013
Júlía Þrastardóttir, gullsmíðameistari verður með námskeið í gerð víravirkis hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða 1. og 2. júní n.k. Námskeiðið er bæði fyrir byrjendur og lengra komna
meira
Ljósmyndanámskeið fyrir Canon notendur 11. maí
7. maí 2013
Nú er tækifæri fyrir þá sem eiga Canon myndavél að læra betur á vélina því laugardaginn 11. maí kl. 10:00-17:00 verður haldið byrjendanámskeið fyrir Canon notendur.
meira
Smiðja á Bíldudal
5.5.2013
Á vegum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og Vinnumálastofnundar er nú rekin smiðja í hönnun og handverki á Bíldudal. Smiðjuna sitja 15 manns frá Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal
meira
Kynning á Háskólagátt Bifrastar og Menntastoðum
Miðvikudaginn 8. maí kl. 12 - 15, verður kynning á Háskólagátt Bifrastar sem er frumgreinanám og Menntastoðum sem er námsleið frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og er undanfari Háskólagáttar.
María Einarsdóttir mun koma frá Bifröst og kynna námsleiðina og inntökuskilyrðin, en jafnframt svara þeim spurningum sem upp kunna að koma. Einnig verður hægt að kynna sér Menntastoðirnar.
Verið velkomin.
meira
Raki og mygla í húsum - skráningarfrestur að renna út
30. apríl 2013
Nú er hver að verða síðastur að skrá sig á námskeið um raka og myglu í húsum sem haldið verður hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða á Ísafirði föstudaginn 3. maí kl. 10:00-16:00, en skráningarfrestur rennur út 1. maí. Námskeiðið er á vegum IÐUNNAR og eru kennarar Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, BSc í líffræði og meistaranemi í lýðheilsuvísindum og Kristinn Alexandersson, byggingatæknifræðingu VSÓ.
meira
Þær ófu og ófu - námskeið í vefnaði
24.4.2013

Námskeiði í vefnaði lauk í gær. Þá útskrifuðust 10 konur af 45 stunda námskeiði,sem staðið hefur yfir frá því um miðjan febrúar. Kennari á námskeiðinu var Sigrún Guðmundsdóttir, handmenntakennari
meira
Tælensk veisla
19.4.2013

Húsfyllir var hjá Fræðslumiðstöðinni fimmtudaginn 18. apríl á fyrirlestri um Tæland, sem var sá sjötti og síðasti röð erinda um mannauðinn og menningarlega fjölbreytni. Laddawan Dagbjartsson og samstarfskonur sögðu frá Tæland; landi og þjóð, menningu og mannlífi
meira
Kynning á smiðju í hönnun og handverki á Bíldudal
16. apríl 2013
Þriðjudaginn 16. apríl kl. 14:30 verður haldin kynning í Læk á Bíldudal á námsskrá sem kallast Smiðja í hönnun og handverki. Kynningin er öllum opin.
meira
Björn Hafberg á svæðinu
14.4.2013

Björn Hafberg náms- og starfsráðgjafi verður á norðursvæði Vestfjaða vikuna 15. - 19. apríl.
meira
Námskeið um raka og myglu frestast
11. apríl 2013Námkskeiðinu um raka og myglu í húsum sem halda átti á Ísafirði 11. apríl er frestað til föstudagsins 3. maí kl. 10.00.
Grænn apríl hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða - Námskeið í jarðgerð og sorpflokkun
4. apríl 2013
Helgina 13. og 14. apríl stendur Fræðslumiðstöð Vestfjarða fyrir tveimur námskeiðum í jarðgerð og sorpflokkun. Fyrra námskeiðið verður á Ísafirði laugardaginn 13. apríl í samvinnu við sveitarfélögin á norðanverðum Vestfjörðum og seinna námskeiðið verður á Patreksfirði sunnudaginn 14. apríl í samvinnu við Vesturbyggð og Tálknafjarðarhrepp. Námskeiðin eru hugsuð til þess að efla íbúa í þeirri sorpflokkun sem sveitarfélögin hafa verið að innleiða síðustu misseri.
meira
Raki og mygla í húsum - námskeið 3. maí
3. apríl 2013
Ath! Námskeiðinu verður frestað fram til 3. maí.
Síðustu mánuði hefur mikið verið rætt um myglusveppi í húsum og hvaða afleiðingar slíkt getur haft. Nú gefst iðnaðarmönnum og öðrum sem málið varðar tækifæri á aukinni þekkingu á þessu sviði því föstudaginn 3. maí stendur IÐAN í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vestfjarða fyrir námskeiði um raka og myglu í húsum.
meira
Smiðja í hönnun og handverki - kynningarfundur 3. apríl
2. apríl 2013
Miðvikudaginn 3. apríl kl. 18:00 verður kynning í Fræðslumiðstöð Vestfjarða á Ísafirði á Smiðju í handverki og hönnun. Smiðjan er 120 kennslustunda nám sem kennt er samkvæmt námsskrá frá Fræðslumiðtöð atvinnulífsins. Í febrúar var samskonar námskeið í boði fyrir atvinnuleitendur og aðra sem gátu sótt nám á dagtíma og þótti það takast mjög vel. Nú á að kanna hvort áhugi er á að endurtaka leikinn en bjóða upp á kennslu utan hefðbundins vinnutíma.
meira
Fluguhnýtingar á Patreksfirði
26. mars 2013
Fræðslumiðstöð Vestfjarða býður nú í fyrsta skipti upp á námskeið í fluguhnýtingum og verður það haldið á Patreksfirði helgina 6.-7. apríl. Þetta er upplagt tækifæri fyrir veiðimenn sem hafa áhuga á að hnýta sínar eigin flugur en skortir til þess þekkinguna.
meira
Útskrift úr Fagnámskeiði fyrir starfsfólk leikskóla
25. mars 2013
Sunnudaginn 17. mars útskrifuðust níu nemendur Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða úr Fagnámskeiði fyrir starfsmenn leikskóla, en alls luku 29 konur víðs vegar um landið náminu. Námið var samvinnuverkefni fjögurra fræðslu- og símenntunarmiðstöðva.
meira
Ýmis áhugaverð og spennandi námskeið framundan
22. mars 2013Í dymbilvikunni verður dreift blöðingu í hús á norðanverðum Vestfjörðum þar sem námskeið sem haldin verða á Ísafirði í apríl og maí eru kynnt. Þar kennir ýmissa grasa, ný námskeið sem ekki hafa verið kennd hjá miðstöðinni áður í bland við námskeið sem hafa fest sig í sessi og reglulega er boðið upp á. Það ættu því flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi hvort sem þeir eru að leita eftir tómstundanámskeiðum eða námskeiðum sem geta eflt og styrkt fólk í starfi.
meira
Nú er komið að Rússlandi
18. mars 2013
Fimmti fyrirlesturinn í röð um mannauðinn og menningarlega fjölbreytni verður fimmtudaginn 21. mars kl. 17 – 18 í Fræðslumiðstöð Vestfjarða á Ísafirði. Þá fjallar Nina Ivanova um Rússland; segir frá landi og þjóð, mannlífi og menningu. Hvað er líkt með Íslendingum og Rússum? Eru hjörtu mannanna kannski allsstaðar eins?
meira
Sápugerð
11. mars 2013
Sunnudaginn 17. mars n.k. er fyrirhugað námskeið í sápugerð. Nú er hver að verða síðastur að skrá sig. Að námskeiðinu loknu eiga þátttakendur að geta búið til sápur eftir eigin uppskriftum.
meira
Næstu námskeið
6. mars 2013
Á næstu vikum verða ýmiss námskeið í boði hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Námskeiðin eru á fjölbreyttum sviðum, svo sem tómstundir, réttindanám og vottað nám
meira
Frá Himnaríki og helvíti til Hjarta mannsins – nýtt námskeið
5. mars 2013Fræðslumiðstöð Vestfjarða býður upp á nýtt og spennandi námskeið nú í mars þar sem fjallað verður um þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar sem samanstendur af bókunum Himnaríki og helvíti, Harmi englanna og Hjarta mannsins. Margir hafa lesið þessar bækur enda er sögusviðið lesendum á norðanverðum Vestfjörðum mjög vel kunnugt
meira
Mannauðurinn – Filippseyjar og Rússland
4. mars 2013
Fimmtudaginn 21. febrúar héldu þær Sóley Chyrish Emilsson og Elvie Guðrún Bacalso erindi um Filippseyjar í fyrirlestraröðinni um
mannauðinn og menningarlega fjölbreytni.
Erindi þeirra var vandað og skemmtilegt og mætingin góð.
Glærurnar sem þær sýndu eru
hér.
meira
Tækifæri til að læra norsku
4. mars 2013
Fyrirhugað er að hefja norskunámskeið mánudaginn 11. mars n.k. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á talmál og tjáningu og farið í undirstöðuatriði málfræði og orðaforða. Námið verður sniðið að allra þörfum eins og kostur er og hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum.
meira.
Kynning á Smiðju í hönnun og handverki í Vísindaporti 1. mars
28. febrúar 2013
Undanfarinn mánuð hefur staðið yfir Smiðja í hönnun og handverki hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Föstudaginn 1. mars munu þátttakendur í Smiðjunni segja frá afrakstri og fjögurra vikna vinnuferli smiðjunnar í Vísindaporti sem haldið er í hádeginu á hverjum föstudegi hjá Háskólasetri Vestfjarða.
meira.
Nú falla öll vötn til Dýrafjarðar - nýtt námskeið
27. febrúar 2013
Fræðslumiðstöðin í samvinnu við þá Elvar Loga Hannesson og Þóri Örn Guðmundsson býður upp á nýtt og spennandi námskeið nú í mars þar sem Gísla saga Súrssonar verður til umfjöllunar. Sagan verður krufin til mergjar, farið í gönguferð um slóðir Gísla í Haukadal og horft á verðlaunaleikritið Gísli Súrsson.
meira.
Vélgæsla
26. febrúar 2013Á hverju ári hefur Fræðslumiðstöðin samvinnu við Guðmund Einarsson kennara um að bjóða upp á vélgæslunámskeið og njóta þau alltaf vinsælda. Laugardaginn 2. mars hefst næsta námskeið og verður það kennt í verkmenntahúsi Menntaskólans á Ísafirði.
meira.
Mannauðurinn - Filippseyjar
15. febrúar 2013
Fjórði fyrirlestur Róta og Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða um
Mannauðinn og menningarlega fjölbreytni verður fimmtudaginn 21. febrúar, kl. 17 – 18.
Þá munu þær Sóley Chyrish Emilsson og Elvie Guðrún Bacalso fjalla um Filippseyjar og segja frá landi og þjóð, mannlífi og menningu og bjóða uppá filippískar veitingar
meira