Facebook sem markaðstæki - grunnnámskeið - fjarkennt frá EHÍ 27/02/2012
Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað. Facebook býður upp á sérstakar aðferðir og uppsetningu til að kynna fyrirtæki, vörur og þjónustu t.d. með uppsetningu sérstakra síðna, sem eru strax aðgengilegar í Google leitarvélinni, ásamt markvissri markaðssetningu auglýsinga. Þeir sem hyggja á markaðssetningu á Facebook síðum þurfa að kunna skil á mörgum nýjum hugtökum, aðferðafræði og tækni. Á þessu grunnnámskeiði er fyrst og fremst farið í rétta, tæknilega uppbyggingu Facebook síðunnar, þannig að hún nýtist sem allra best í samskiptum við markaðinn. Inn í tæknilegar leiðbeiningar er fléttað hugtökum og aðferðum markaðssetningar á samfélagsvefjum.
Tölvan sem vinnutæki - Hólmavík
Hagnýtt námskeið ætlað fólki á öllum aldri sem hefur litla reynslu af tölvum en vill bæta kunnáttu sína. Á námskeiðinu verður farið í þætti sem geta nýst jafnt í starfi sem einkalífi, svo sem að skrifa texta, nota internetið og að meðhöndla tölvupóst.
Myndvinnsla á internetinu - Ísafjörður
Farið er yfir þá þætti sem gott er að hafa í huga þegar verið er að vinna myndir sem eiga að birtast á Netinu. Meðal þess sem tekið verður fyrir á námskeiðnu er Flickr, Youtube, Facebook myndir, Picasa, deiling myndefnis og myndvinnsla með snjallsíma.
Talna- og textavinnsla á internetinu - Ísafjörður
Á námskeiðinu verður fjallað um hvernig hægt er að nota frían internet-keyrðan hugbúnað við texta og talnavinnslu og geyma gögn í gagnaskýjum.
AutoCad - framhald - Ísafjörður
Ætlað öllum sem hafa einhvern grunn í notkun forritsins.Meðal þess sem farið verður í eru blokkir, hatch, 3D og tækjastikan.
Vefsmíði fyrir byrjendur - Ísafjörður
Námskeið sem kemur þátttakendum af stað við vefsmíðar. Grunnþættir útskýrðir t.d. staðlar og tækni, myndvinnsla fyrir vef, xhtml og css kóðun, notkun ftp ofl. Eins verður útskýrt hvernig hægt er að nýta ýmislegt á vefnum
til að stytta sér leiðir.