Helstu flokkar geðraskana - fjarkennt frá Framvegis 13/02/2012
Á námskeiðinu fræðast þátttakendur um og öðlast þekkingu á algengustu geðsjúkdómum fullorðinna, tíðni, orsökum, einkennum, meðferðarúrræðum og horfum.
Markaðsmál og almannatengsl - Patreksfjörður 09/02/2012
Námskeið í samvinnu Gústafs Gústafssonar, forstöðumanns Markaðsstofu Vestfjarða og Fræðslumiðstöðvarinnar.
Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa við, eða vilja starfa við markaðssamskipti. Tilgangur námskeiðisins er að kynna þátttakendum helstu áherslur og leikreglur í markaðsmálum og almannatengslum.
Markaðsmál og almannatengsl - Reykhólar 07/02/2012
Námskeið í samvinnu Gústafs Gústafssonar, forstöðumanns Markaðsstofu Vestfjarða og Fræðslumiðstöðvarinnar.
Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa við, eða vilja starfa við markaðssamskipti. Tilgangur námskeiðisins er að kynna þátttakendum helstu áherslur og leikreglur í markaðsmálum og almannatengslum.
Markaðsmál og almannatengsl - Hólmavík 07/02/2012
Námskeið í samvinnu Gústafs Gústafssonar, forstöðumanns Markaðsstofu Vestfjarða og Fræðslumiðstöðvarinnar.
Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa við, eða vilja starfa við markaðssamskipti. Tilgangur námskeiðisins er að kynna þátttakendum helstu áherslur og leikreglur í markaðsmálum og almannatengslum.
Vinnugleði - mín vinna, mitt viðhorf - fjarkennt frá EHÍ 30/03/2012
Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað. Hagnýtt námskeið fyrir alla sem hafa áhuga á að bæta sig, blómstra og auka vinnugleði sína í daglegu starfi.
Sálgæsla og áfallahjálp - samfylgd í kjölfar áfalla - - fjarkennt frá EHÍ 14/03/2012
Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist færni og innsæi á bæði sálræna þætti og tilvistarleg áhrif áfalla á líf skjólstæðinga og aðstandenda þeirra. Kynntar eru helstu leiðir sem hægt er að nota til að hjálpa þolendum áfalla og aðstandendum sem þurfa að vinna með þungbæra lífsreynslu. Námskeiðið er einkum ætlað fólki er starfar á heilbrigðis- og félagssviði.
Stjórnun breytinga - hlutverk stjórnenda og þáttur starfsmanna - fjarkennt frá EHÍ 14/03/2012
Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað. Kynntar verða hagnýtar lausnir í breytingum sem byggja á helstu kenningum og aðferðum breytingastjórnunar. Námskeiðið er hugsað fyrir alla stjórnendur sem vilja auka við þekkingu sína í tengslum við innleiðingu og stjórnun breytinga. Markmiðið er að þátttakendur öðlist góðan skilning á stjórnun breytinga og geti leitt breytingar í fyrirtækjum og stofnunum.
Val á rekstrarformi fyrir atvinnustarfsemi - fjarkennt frá EHÍ 07/03/2012
Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað. Þeir sem eru að hefja atvinnurekstur velta iðulega fyrir sér hvaða form þeir eigi að hafa á fyrirtæki sínu. Eiga þeir að stunda atvinnureksturinn á eigin kennitölu eða kennitölu félags og hvaða félags er þá gjarnan spurt. Ætlað þeim sem eru að hefja atvinnurekstur eða eru að íhuga að breyta rekstrarformi fyrirtækis síns.
Öflugt sjálfstraust - fjarkennt frá EHÍ 06/03/2012
Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að kenna þátttakendum að greina muninn á miklu og litlu sjálfstrausti og ekki síst að kenna aðferðir til að byggja upp og efla sjálfstraust. Kennsla er í formi fyrirlestra, umræðna, verkefna og æfinga. Ætlað öllum þeim sem vilja styrkja sig og efla eigið sjálfstraust auk þess að hafa jákvæð áhrif á aðra.
Lausnamiðuð nálgun - fjarkennt frá EHÍ 05/03/2012
Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja horfa á lausnirnar frekar en vandamálin. Markmið og tilgangur námskeiðsins er að kynna þátttakendum árangursríka aðferð og ýmsar leiðir sem geta nýst fólki við að ná markmiðum sínum í lífi og starfi.
Kvíði barna og unglinga - fagnámskeið - fjarkennt frá EHÍ 10/02/2012
Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað. Haldið í samstarfi við geðsvið Landspítalans. Á námskeiðinu verður fjallað um eðli og einkenni kvíða, af hverju börn verða kvíðin, hvernig kvíði birtist, hvernig hann viðhelst og hvernig æskilegt er að bregðast við kvíðahegðun. Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa með börnum, t.d. grunn- og leikskólakennurum, sérkennurum, námsráðgjöfum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum.
Stjórnun - Ísafjörður
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum innsýn í hlutverk, verksvið og ábyrgð stjórnenda fyrirtækja á sviði starfsmannastjórnunar/mannauðsstjórnunar og verkstjórnar. Á námskeiðinu verður m.a. farið í ýmsar stjórnunarkenningar, samskiptahæfni og mannleg samskipti, hvað mótar samskipti og hvað hefur áhrif á starfsanda á vinnustað.
Sálrænn stuðningur - Ísafjörður 03/03/2012
Á námskeiðinu fræðast þátttakendur um gildi sálræns stuðnings í aðstæðum sem geta valdið áföllum. Námskeiðið er frítt.
Bókhald og skjalavarsla - Ísafjörður 21/02/2012
Þátttakendur fá innsýn í bókhaldslög og uppbyggingu skjalavörslu fyrirtækja. Þátttakendur fá þjálfun í afstemmingu, gerð reikninga, kvittana, færslu launa og viðkomandi gjalda. Ennfremur flokkun, merkingu og að stemma af fylgiskjöl. Farið verður í túlkun rekstrarreikninga, efnahagsreikninga og fjármagnsstreymis og að setja upp áætlanir um rekstur, efnahag og greiðslur.
Bakskóli - Ísafjörður
Námskeið í bakskóla Sjúkraþjálfunar Vestfjarða ehf. í samvinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Á námskeiðinu verður farið í uppbyggingu stoðkerfisins, hreyfingafræði, líkamsbeitingu, líkamsstöðu og líkamsvitund, áhættuþætti og verklegar æfingar.
Viðburðastjórnun - kennt í fjarkennslu
Námskeiðið er ætlað fólki, sem hefur það mikilvæga hlutverk að skipuleggja og stýra hátíðum, veislum og viðburðum hvort sem er fyrir fjölskylduna, vinnustaðinn, félagasamtök eða sveitarfélög. Fjallað eru um undirbúninginn, stemninguna og stílinn, stjórnun á staðnum, frágang og lög reglur og leyfi.