Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Námsleiðir FA

Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum - Patreksfjörður   01/02/2012
Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum er 300 kennslustunda nám ætlað þeim sem eru að minnsta kosti 23 ára, eru starfandi á vinnumarkaði og hafa hafið nám á framhaldsskólastigi en ekki lokið almennum bóklegum greinum með prófi. Námið skiptist á þrjárannir og hefst í byrjun febrúar 2012.
Meðferð matvæla - Hólmavík   
Meðferð matvæla er 60 kennslustunda nám ætlað þeim sem eru að minnsta kosti 20 ára og starfa við framleiðslu eða meðhöndlun matvæla.
Grunnmenntaskólinn - Drangsnes   
Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustunda nám sem skipt er á tvær annir. Námið hentar vel þeim sem hafa litla formlega menntun eða hafa ekki verið í námi lengi en vilja komast af stað.
Grunnmenntaskólinn - Ísafjörður   
Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustunda nám sem skipt er á þrjár annir. Námið hentar vel þeim sem hafa litla formlega menntun eða hafa ekki verið í námi lengi en vilja komast af stað. Meðal námsþátta eru sjálfstyrking og samskipti, námstækni, íslensk, enska, stærðfræði, tölvu- og upplýsingatækni.
Færni í ferðaþjónustu II   
Sjálfstætt framhald af Færni í ferðaþjónustu I. Um er að ræða 100 kennslustunda nám fyrir starfsmenn í ferðaþjónustu eða þá sem stefna að starfi í greininni. Meðal námsþátta eru tungumál, tölvur, tjáning og framkoma, vinnubrögð og vinnuvernd, umhverfismál í ferðaþjónustu, samfélags– og staðarþekking, fyrsta hjálp, val um sérsvið og lokaverkefni.
Fagnámskeið I fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu - Ísafjörður   
Fagnámskeið I er 61 kennslustunda nám ætlað ófaglærðum starfsmönnum í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Meðal þeirra þátta sem teknir eru fyrir í náminu eru frumkvæði og framtakssemi, vinnuumhverfið, hreinlæti og snyrtimennska, sjálfstraust og sjálfsöryggi, samtalstækni og samskipti.
Byggingarliðar - grunnnám - Ísafjörður   
Námið er 45 kennslustundir. Meðal þeirra þátta sem teknir eru fyrir eru teikningar og verklýsingar, mælitæki og mælingar, verkáætlanir og verkefnastjórnun, framleiðslukostnaður, gæðastjórnun, samskipti og samstarf á vinnustað, þjónusta, og forvarnir og öryggismál.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is