Nám á Flateyri 22/02/2012
Nám í boði á Flateyri fyrir þá sem vilja efla sig í starfi eða auka getu sína í notkun á tölvum til samskipta eða skemmtunar. Hefst 22. febrúar 2012 með kynningarfundi í húsnæði Fræðslumiðstöðvarinnar á Flateyri (Sólborg) kl. 18:00.
Landnemaskóli - Szkola dla Osiedlenców - Flateyri 20/02/2012
Landnemaskólinn er 150 kennslustunda nám sem kennt yrði eftir vinnu á vorönn (eða skipt á tvær annir, 75 kennslustundir á vorönn og 75 á haustönn).
Náms- og starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjafi getur veitt upplýsingar um nám og störf, lagt fyrir áhugasviðsgreiningar, aðstoðað við ferilsskrár o.fl. Fólk er hvatt til að nýta sér þjónustu hans og panta viðtalstíma.
Aftur í nám
Ætlað þeim sem eru komnir af unglingsaldri og glíma við lestrar- og skriftarörðugleika. Tilgangur námsins er að efla sjálfstraust námsmanna, þjálfa þá í lestri og skrift með aðferðum Ron Davis. Auk Ron Davis þjálfunar er farið í sjálfsstyrkingu, íslensku og tölvu- og upplýsingatækni á námskeiðinu. Bæði er um að ræða einstaklings- og hópkennslu.
Grunnmenntaskólinn - Flateyri
Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustunda nám sem skipt er á tvær til þrjár annir. Námið hentar vel þeim sem hafa litla formlega menntun eða hafa ekki verið í námi lengi en vilja komast af stað. Meðal námsþátta eru sjálfstyrking og samskipti, námstækni, íslensk, enska, stærðfræði, tölvu- og upplýsingatækni.