Kennari: Björn Hafberg, náms- og starfsráðgjafi.
Verð kr: 1.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði.
Námskeið hefst: 26/04/2012 - Umsóknarfrestur til: 25/04/2012
Fjöldi kennslustunda: 4
Ath: Kennt fimmtudaginn 26. apríl kl. 13:00 – 16:00.
Fjallað verður um mismunandi gerðir prófa s.s. ritgerða/krossapróf og hvað þarf sérstaklega að hafa í huga við hverja prófgerð. Skoðaðar verða mismunandi aðferðir við prófundirbúning s.s. lestraraðferðir, tímaskipulagning og sjálfsmat m.a. með vinnu við kortlagningu hvers og eins í gegnum svokallaðan námshring. Einnig verður leitast við að greina helstu orsakaþætti prófkvíða og leiðir til að ráðast gegn honum.