Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Að telja rétt fram - fjarkennt frá EHÍ

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Ásmundur G. Vilhjálmsson lögmaður hjá SkattVís slf., skattaráðgjöf og fræðsla og aðjúnkt í skattarétti við viðskiptadeild HÍ
Verð kr: 12.500 -
Staður: Ísafjörður, Hólmavík, Patreksfjörður
Námskeið hefst: 08/02/2012 - Umsóknarfrestur til: 30/01/2012
Fjöldi kennslustunda: 6
Ath: Kennt miðvikudaginn 8. febrúar kl. 8:30-12:30.

Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað.

Gerð verður grein fyrir skyldu rekstraraðila til að reikna sér endurgjald, greiða í lífeyrissjóð og skila tryggingagjald.

Rætt verður um uppgjör tekjuskattsstofns í þeim tilvikum er hlutaðeigandi aðila hlotnast tekjur af sölu eigin verka, styrkja til framleiðslu og eða sköpunar á verki. Eru þessar tekjur skilyrðislaust atvinnurekstrartekjur eða má telja þær fram sem einstaklingstekjur og hvaða afleiðingar hefur það? Hvaða gjöld má draga frá tekjunum við uppgjör tekjuskattstofnsins? Er kostnaður vegna heimaaðstöðu frádráttarbær og ef svo er hvaða skilyrðum þarf aðstaðan að fullnægja svo að ekki þurfi að hafa áhyggjur af frádrættinum?

Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem stunda sjálfstæðan rekstur, s.s. fræðimenn, rithöfundar og listamenn svo og þeir sem annast um skattskil slíkra aðila. Námskeiðið hentar einnig öllum sem gera út að heiman og hafa tekjur í formi sölu á þjónustu svo og hvers konar styrkja.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is