Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Aftur í nám

Flokkur námskeiðs: Flateyri
Kennari: Jón Einar Haraldsson, Sturla Kristjánsson o.fl.
Staður: Eyrarvegur 8, Flateyri
Fjöldi kennslustunda: 95

Ætlað þeim sem eru komnir af unglingsaldri og glíma við lestrar- og skriftarörðugleika. Tilgangur námsins er að efla sjálfstraust námsmanna, þjálfa þá í lestri og skrift með aðferðum Ron Davis. Auk Ron Davis þjálfunar er farið í sjálfsstyrkingu, íslensku og tölvu- og upplýsingatækni á námskeiðinu. Bæði er um að ræða einstaklings- og hópkennslu.

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins gefur námsskránna Aftur í nám út. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til allt að 7 eininga til styttingar á námi í framhaldsskóla. Námsmenn þurfa að gera ráð fyrir því að taka sér frí frá vinnu þar sem hver og einn fær 40 einkatíma með Ron Davis þjálfaranum.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is