|
||||
|
|
Námskeið frá Stofnun fræðasetra Háskóla Íslands í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Háskólasetur Vestfjarða.
Fjarkennt frá Háskólasetri Vestfjarða og á kennsluvef HÍ.
Námskeiðið er sérstaklega ætlað þeim sem hyggjast hefja nám á háskólastigi en getur gagnast ýmsum öðrum, eins og t.d. þeim sem þurfa að semja skriflegar greinargerðir eða annað slíkt, flytja erindi og fyrirlestra o.s.frv.
Þjálfun og kennsla í akademískum vinnubrögðum, einkum við samningu og frágang ritgerða, erinda og verkefna. Gerð verður grein fyrir helstu rannsóknaraðferðum, eigindlegum og megindlegum, gildi gagnrýninnar hugsunar og þess að setja skoðanir fram á rökvísan og aðgengilegan hátt. Heimildaöflun, úrvinnsla heimilda og skráning þeirra. Ritun, stíll og frágangur. Framsögn og framsetning fyrirlestra í mæltu og rituðu máli. Byggt verður á bókum og greinum sem efnið varða auk æfinga og verkefna undir stjórn kennara. Gert er ráð fyrir 4-5 fyrirlestrum og/eða fyrirspurnartímum í gegnum fjarfundabúnað auk samskipta á kennsluvef. Námsgögnum og verkefnum verður dreift gegnum kennsluvef háskólans.