Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Arfur kynslóðanna - Hólmavík

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Jón Jónsson þjóðfræðingur
Verð kr: 12.400 -
Staður: Hólmavík
Fjöldi kennslustunda: Óákveðið
Ath: Hefst í mars 2012.

Á námskeiðinu fá þátttakendur leiðbeiningar um hvernig hægt er að bera sig til við að skrá niður lífshlaup, skemmtilegar sögur – munnmælasögur eða sögur úr lífinu – minningar sem tengjast hlutum eða stað eða annað sem gaman er að varðveita og koma áfram til næstu kynslóða. Einnig verður fjallað um heimildagildi skjala, t.d. ljósmynda, dagbóka og bréfa og rætt um varðveislu þeirra. Þá verður kynning á spurningalistum Þjóðminjasafnsins. 

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is