Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Baujan - sjálfstyrking

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Guðbjörg Thoroddsen, leikkona og ráðgjafi
Verð kr: 40.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 23/10/2009 - Umsóknarfrestur til: 16/10/2009
Fjöldi kennslustunda: 10
Ath: Kennt föstudaginn 23. október kl. 13:00-16:30 og laugardaginn 24. október kl. 10:-13:30.

Námskeið haldið af Bauju í samvinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Nánari upplýsingar á www.baujan.is

Baujan byggir á reynslu og námi skapanda hennar Guðbjargar Thoroddsen (Bauju). Hún notar slökunaröndun til þess að komast á tilfinningalegan núllpunkt, en þaðan eru allar leiðir opnar og hverjum og einum sem þekkir tilfinningar sínar eru allar leiðir færar.

Tilfinninganámskeiðið “ Baujuna ” er þróuð út frá reynslu Guðbjargar frá meðferðarlegu starfi á uppeldisstofnunum ásamt tækni leikarans við tilfinningavinnu. Þessa tækni útfærir hún og kennir hana til sjálfshjálpar. Aðferðina nefnir hún Baujuna þar sem baujur vísa sjómönnum leiðina og eru þeim lífsnauðsynleg kennileiti. Það þarf að standa baujuvakt í öllum veðrum. Aðferðir tilfinninganámskeiðsins Baujunnar eru vegvísar öllu fólki hvort sem er á sjó eða landi. Einnig kennir hún aðferðir sínar við Baujuna þar sem hún er sjálf kölluð Bauja.

Börnum er kennt flest annað en að læra á sig sjálf en það ætti að vera undirstöðuþekking . Oft eru börn skammarlega illa að sér í tilfinningaheitum t.d. geta 8-10 ára börn átt það til að spyrja hvað kvíði sé og mörg börn í 9-og10 bekk grunnskóla vita ekki hvað sektarkennd er. Allir þekkja tilfinninguna en aðeins sumir vita hvað hún heitir. Þá er ekki von á góðu. Þegar við höfum ekki orð yfir hlutina getum við ekki fjallað um þá eða unnið með.

Út frá meðvitaðri öndun þar sem slökun og spenna eru pólarnir sem unnið er með hefur verið byggt upp sjálfstyrkingarnámskeiðið “ Baujuna ”.

Við getum stjórnað eigin líðan og athöfnum ef við fáum smá leiðbeiningar. Við þurfum sjálfsþekkingu til að geta notið þess sem lífið hefur upp á að bjóða. Það er grunnur að þeirri þekkingu sem verið er að gefa með þessu námskeiði, grunnur sem er árangursríkur og fljótvirkur.

Helsti kostur þessarar aðferðar er að hver og einn er að skoða og vinna fyrir sjálfan sig, ekki til að þóknast neinum öðrum en sjálfum sér.

“Baujan” hefur verið í kennd í mörgum skólum. Með sama grunnefni og út frá sömu hugsun er Baujan einnig kennd sem einstaklingsaðstoð með góðum árangri, sem samskiptaaðstoð innan bekkja skólanna (eineltistilhneigingar), á vinnustöðum og við fjölskylduaðstoð.

Grunnurinn og uppbygging þessa námskeiðs er einfaldur, jafn einfaldur og það að vera til! Grunnurinn er byggður á öndun undirstöðu tilveru okkar. Að vera meðvituð um öndun okkar sem er samofin spennu og slökun líkamans er sá galdur eða sú einfalda staðreynd sem við þurfum að þekkja til að geta haft áhrif á líðan okkar og hegðun. Þetta er ekki ný staðreynd heldur staðreynd sem er jafn gömul manninum.

Líkami og tilfinningar eru eitt. Líf og öndun eru eitt.

Skráning og upplýsingar hjá Guðbjörgu í síma 566-7611 eða 699-6934.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is