Kennari: Ingileif Ástvaldsdóttir
Verð kr: 2.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða Ísafirði, Fjarkennt á Patreksfjörð, Hólmavík og Reykhóla.
Námskeið hefst: 08/06/2009 - Umsóknarfrestur til: 05/06/2009
Fjöldi kennslustunda: 9
Bekkjarfundir eru ein leið sem kennarar geta nýtt sér til að auka umræður meðal nemenda. Fundirnir eru vettvangur þar sem nemendur læra að hlusta á og virða skoðanir samnemenda sinna og ásamt því að hópurinn eignast leið til leysa úr ágreiningsmálum.
Á námskeiðinu farið yfir eftirtalda þætti: markmið, notagildi, framkvæmd og innihald bekkjarfunda. Á námskeiðinu verður notast við umræður, fyrirlestra, hagnýt verkefni og æfingar sem allt á að miða að því að þátttakendur fái sem mesta innsýn í ramma og form fundanna ásamt því að þjálfast í að halda slíka fundi.
Drög að dagskrá:
1. Kynning
2. Almennar umræður 10 – 15 mín:
- Hverjir þekkja bekkjarfundi og hve vel?
- Hver er reynslan?
3. Fyrirlestur:
- En af hverju bekkjarfundi?
- Aðstæður bekkjarfunda
- Reglur
- Lögmal stjórnenda
- Mismunandi tegundir bekkjarfunda
- Opnir umræðufundir
- Skipulagsfundir um kennsluefni og kennsluaðferðir
- Fundir um gildismat
- Fundir sem leysa ágreining - bráðafundir
- Önnur vinna sem getur bætt bekkjaranda
4. Hópastarf (blandaðir hópar) þar sem þátttakendur íhuga nokkrar spurningar:
- Viðhorf og væntingar til bekkjarfunda.
- Hvernig sjá þátttakendur að bekkjarfundir geti nýst í skólastarfi þeirra?
5. Skil úr hópastarfi og umræður
6. Hópastarf (eftir skólum eða skólastigum)
- Undirbúa innihald og framkvæmd 2-3 bekkjarfunda
7. Kynningar hópanna á bekkjarfundunum og innihaldi þeirra
8. Almennar umræður og lok