Kennari: Ingrid Kuhlman, þjálfari og ráðgjafi hjá
Verð kr: 12.900 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Ísafirði
Námskeið hefst: 20/01/2009 - Umsóknarfrestur til: 15/01/2009
Fjöldi kennslustunda: 6
Ath: Kennt þriðjudag 20. janúar 2009 kl. 18.00 – 22.00.
Á námskeiðinu fá þátttakendur innsýn í hvernig þeir verja tíma sínum og læra að forgangsraða verkefnum. Farið er í mikilvægi þess að skapa tíma fyrir mikilvægustu verkefnin með góðri skipulagningu og takast á við truflanir af ýmsum toga, eins og símtöl og tölvupóst. Tekin eru fyrir atriði eins og algengir tímaþjófar, frestun, skipulagning og áætlanagerð, fundir og fundarstjórn, að segja nei, jákvætt hugarfar og sjálfsstjórn. Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja læra aðferðir til að stjórna tíma sínum og sjálfum sér betur.