|
||||
|
|
Námskeiðið er fjarkennt frá Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ) og haldið í samstarfi við Biskupsstofu.
Hið stórbrotna bókasafn Biblían býður upp á könnunarleiðangur sem á sér engan líkan. Hér verður farið í fjársjóðsleit um lendur ljóða, spekiorða og spádóma, með hinn sagnfræðilega arf þúsund ára að leiðarsteini. Staldrað verður við á stöðum sem baðaðir eru frægðarljóma, bæði landfræðilega og guðfræðilega, en einnig leitaðar uppi skuggsælir og svalandi áningarstaðir s.s. í ritum minni spámannanna. Guðsmynd Gamla testamentisins verður til skoðunar á þessu ferðalagi og hlutverk heilags anda í hinum ýmsu ritum Biblíunnar.
María Ágústsdóttir, guðfræðingur, kennari og héraðsprestur í Hallgrímskirkju, hefur um árabil kennt á námskeiðum Leikmannaskóla Þjóðkirkjunnar með lestur Biblíunnar og kristna trú í hversdeginum í forgrunni. Á námskeiðum sínum leggur sr. María áherslu á lifandi frásögn og tengingu við menningu og líf manneskjunnar í nútímanum. Þetta námskeið er fyrir alla, óháð trúarskoðunum, en gagnlegt er að hafa sína eigin Biblíu við hendina.