Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Blogg - Patreksfjöður

Flokkur námskeiðs: Tölvur
Kennari: María Ragnarsdóttir
Verð kr: 5.800 -
Staður: Patreksskóli
Námskeið hefst: 09/09/2008 - Umsóknarfrestur til: 09/09/2008
Fjöldi kennslustunda: 5
Ath: Kennt þriðjudag 9. september og fimmtudag 11. september

Vilt þú gerast bloggari?
Stutt námskeið um helstu atriði sem kunna þarf skil á þegar menn byrja að blogga. Þátttakendur þurfa að panta sér aðgang að kerfinu www.123.is og greiða fyrir hann áður en námskeið hefst.
Farið verður í hvernig skráð er í dagbók (bloggað), búinn til persónulegur „haus“ efst á síðuna, settar inn myndir og myndbönd. Sýnt hvernig geyma má önnur skjöl á vefsíðunni. Einnig hvernig myndaalbúmin eru flokkuð og hvernig texti er skráður við myndirnar. Inn í þetta verður fléttað umfjöllun um siðareglur á netinu.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is