Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Blómstraðu á Patró

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Jóna Björg Sætran menntunarfræðingur
Verð kr: 9.700 kr -
Staður: Þekkingarsetrið Skor á Patreksfirði
Námskeið hefst: 14/05/2008 - Umsóknarfrestur til: 14/05/2008
Fjöldi kennslustunda: 6
Ath: Kl. 17 - 21

image
Jóna Björg Sætran menntunafræðingur verður með námskeiðið Blómstraðu! í Þekkingarsetrinu Skor á Patreksfirði miðvikudaginn 14. maí n.k.
Á námskeiðinu færðu innsýn í hvernig þú getur haft áhrif á vellíðan þína og velgengni á ýmsum sviðum með meðvitaðri stjórnun hugsana. Allt hefst á einni hugsun - tilfinningar þínar ráðast að miklu leyti af hugsunum þínum.
Þú getur aðeins hugsað eina hugsun í einu. Breyttu því hvernig þú hugsar og þú munt geta breytt lífi þínu því þú ert það sem þú hugsar, upplifir af tilfinningu - og framkvæmir.

Jóna Björg er upphaflega menntaður grunnskóla- og framhaldsskólakennari, hefur langa reynslu af kennslu og kennslugagnagerð og starfaði m.a. um tíma sem námstjóri í dönsku á vegum Menntamálaráðuneytisins.

Á námskeiðinu verður fjallað um og unnið m.a. með:
* Blómstraðu! Njóttu þess að vera þú!
* Þú berð ábyrgð á því að gera það besta sem þú getur fyrir
sjálfa/-n þig!
* Þú verður að byrja á að vinna í eigin vellíðan og velgengni!
* Þú getur miklu meira en þú heldur!
* Það er allt í lagi að vilja meira!
* Hvað er velgengni og auðlegð?
* Markmiðasetning og jákvæðar staðhæfingar!
* Skiptir umhverfi mitt máli?
* Á hvað ertu að horfa heima hjá þér?
* Skiptir máli í hvaða átt ég sef?
* Get ég nýtt mér forn fræði Feng Shui til að mér og mínum líði
betur – og jafnvel til að okkur vegni betur? Hvernig?

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is