Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Börnin og netið - netnotkun barna og unglinga.

Flokkur námskeiðs: Tölvur
Kennari: Haukur Vagnsson.
Verð kr: 9.000 kr. -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða
Námskeið hefst: 22/01/2008 - Umsóknarfrestur til: 22/01/2008
Fjöldi kennslustunda: 8
Ath: Kennt 22., 24., 29. og 31. janúar kl. 19.30 – 21.00.

Netið er frábær miðill. Af því er hægt að hafa ómældan fróðleik og mikla skemmtan. Því fylgir einnig hætta.
Börn og unglingar eru fljótari að tileinka sér tölvutæknina en fullorðnir. Foreldrar og aðrir forráðamenn barna finna til vanmáttar síns og vita ekki hvernig þeir eiga að bregðast við.
Námskeiðið Börnin og netið er námskeið fyrir foreldra til að læra um það hvað unga kynslóðin er að gera á Internetinu, á MSN, Skype og fleiri forritum. Sýnt er hvar hætturnar liggja og hvernig hægt er að gera netnotkun barnanna hættuminni

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is