Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Byggingarliðar - grunnnám

Flokkur námskeiðs: Námsleiðir FA
Kennari: Ýmsir
Verð kr: 8.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 10/01/2011 - Umsóknarfrestur til: 10/01/2011
Fjöldi kennslustunda: 45
Ath: Hefst mánudaginn 10. janúar kl. 18:00. Eftir það verður væntanlega kennt á þriðjud. og fimmtud. kl. 18:00-20:10.

Námið er 45 kennslustundir og undanfari framhaldsnáms fyrir byggingaliða. Ætlað þeim sem hafa stutta skólagöngu að baki, eru fullra 20 ára og hafa starfað í a.m.k. 6 mánuði hjá fyrirtækjum sem annast gatna- og jarðvinnu, hjá byggingarfyrirtækjum eða hjá fyrirtækjum sem framleiða og selja varning vegna gatnagerðar, húsbygginga- og mannvirkjagerðar.

Meðal þeirra þátta sem teknir eru fyrir eru teikningar og verklýsingar, mælitæki og mælingar, verkáætlanir og verkefnastjórnun, framleiðslukostnaður, gæðastjórnun, samskipti og samstarf á vinnustað, þjónusta, og forvarnir og öryggismál.

Nánari upplýsingar um námsskrána má fá á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins www.frae.is.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is