Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Byggingarliðar - grunnnám - Ísafjörður

Flokkur námskeiðs: Námsleiðir FA
Kennari: Ýmsir.
Verð kr: 8.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði.
Fjöldi kennslustunda: 45
Ath: Kennt á vorönn 2012.

Námið er 45 kennslustundir og undanfari framhaldsnáms fyrir byggingaliða. Ætlað þeim sem hafa stutta skólagöngu, eru fullra 20 ára og hafa starfað í a.m.k. 6 mánuði hjá fyrirtækjum sem annast gatna- og jarðvinnu, hjá byggingarfyrirtækjum eða hjá fyrirtækjum sem framleiða og selja varning vegna gatnagerðar, húsbygginga- og mannvirkjagerðar.

Meðal þeirra þátta sem teknir eru fyrir eru teikningar og verklýsingar, mælitæki og mælingar, verkáætlanir og verkefnastjórnun, framleiðslukostnaður, gæðastjórnun, samskipti og samstarf á vinnustað, þjónusta, og forvarnir og öryggismál.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is