Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Einhverfa og skyldar þroskaraskanir

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Ingólfur Einarsson, Guðrún Þorsteinsdóttir, Guðný Stefánsdóttir, Sigríður Lóa Jónsdóttir og Sigrún Hjartardóttir
Verð kr: 9.500 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða
Námskeið hefst: 27/11/2007 - Umsóknarfrestur til: 24/11/2007
Fjöldi kennslustunda: 8
Ath: Fyrir foreldra barna með einhverfu er 50% afsláttur.

Námskeiðið er ætlað aðstandendum og starfsfólki á sviði uppeldis og menntunar sem sinna þjálfun og meðferð barna með einhverfu og skyldar þroskaraskanir.
Markmiðið er að efla skilning og þekkingu fagfólks á þörfum barna með einhverfu og auka gæði þeirrar þjónustu sem þegar er veitt. Efla færni til að byggja upp markvissa íhlutun.

Meðal efnis: Raskanir á einhverfurófi, greining einhverfu, álag í uppeldi og starfi, fjölskyldumiðuð þjónusta, snemmtæk íhlutun fyrir börn með einhverfu og áherslur í starfi með börnum á grunnskólaaldri. Námskeiðið byggist aðallega á fyrirlestrum, en einnig eru sýnd íslensk fræðslumyndbönd um einhverfu.

Dagskrá

9:00 - 9:30 Hegðunareinkenni einhverfu - myndband.
9:30- 10:20 Raskanir á einhverfurófi, orsakir, þróun og horfur.
Ingólfur Einarsson (fjarfundur)
Kaffi
10:40-11:20 Greining einhverfu.
Svandís Ása Sigurjónsdóttir (fjarfundur)
11:20-11:50 Að takast á við breytt líf – fjölskyldumiðuð þjónusta.
Guðrún Þorsteinsdóttir (fjarfundur)
11:50-12:10 „Hver lífsins þraut“ - myndband frá Stöð 2.
Hádegishlé
13:00-13:40 Álag í uppeldi og starfi.
Sigríður Lóa Jónsdóttir (fjarfundur)
13:40-14:30 Snemmtæk íhlutun fyrir börn með einhverfu.
Guðný Stefánsdóttir (fjarfundur)
Kaffi
14:50-15:40 Áherslur í starfi með börnum með einhverfu á grunnskólaaldri.
Sigrún Hjartardóttir (fjarfundur)
15:40-16:00 Kynning á Umsjónarfélagi einhverfra.
Umræður og námskeiðslok.

Leiðbeinendur:
Ingólfur Einarsson, barnalæknir
Guðrún Þorsteinsdóttir, félagsráðgjafi.
Guðný Stefánsdóttir, þroskaþjálfi
Sigríður Lóa Jónsdóttir, sálfræðingur og sérfr. í fötlunum barna.
Sigrún Hjartardóttir, sérkennari og einhverfuráðgjafi.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is