Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Excel I töflureiknir - Patreksfjörður

Flokkur námskeiðs: Tölvur
Kennari: Sverrir Haraldsson
Verð kr: 21.500 -
Staður: Patreksskóli
Námskeið hefst: 13/10/2008 - Umsóknarfrestur til: 10/10/2008
Fjöldi kennslustunda: 20
Ath: Kennt mánudaga og miðvikudaga kl. 20.00 – 21.30.

Námskeið fyrir byrjendur. Engin undirstaða er nauðsynleg.
Farið verður í grundvallaruppbyggingu töflureiknisins Excel og helstu aðgerðir við uppsetningu á reiknilíkönum og töflum, snið hólfa og síðuútlit. Gerð haus- og fótlína, notkun ramma, rasta og teikniáhalda. Áhersla er lögð á notkun “vinnubóka”, afritun og flutning á milli síðna. Æfð gerð formúla, notkun algengustu reiknifalla, fastar og afstæðar tilvísanir og afritun formúla. Kynnt myndræn framsetning talna í stöpla-, línu- og skífuritum.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is