Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Facebook sem markaðstæki fyrir lengra komna - fjarnámskeið frá EHÍ

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Maríanna Friðjónsdóttir, sviðsstjóri hjá Kvikmyndaskóla Íslands
Verð kr: 14.500 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Ísafirði, Þekkingarsetrið Skor Patreksfirði, Þróunarsetrið á Hólmavík
Námskeið hefst: 03/06/2009 - Umsóknarfrestur til: 29/05/2009
Fjöldi kennslustunda: 9
Ath: Kennt mið. og fim. 3. og 4. júní kl. 9:00-12:00

Áfram er haldið þar sem frá var horfið á grunnnámskeiði um Facebook og markaðssetningu.

Fjallað verður um auglýsingar á Facebook, s.s. uppsetningu, markhópa og verðhugmyndir. Hvað á að auglýsa? Farið verður nánar í framleiðslu efnis, notkun mynda, lifandi miðlun og almenna aðferðafræði við að ná athygli notendahópsins. Nokkur verkfæri sem auðvelda vinnuna verða einnig skoðuð betur. Farið í gegnum framleiðsluferli upplýsinga og hvernig þær geta dreifst. Einnig skoðaðar nokkrar af þeim viðbótareiningum sem finnast fyrir síður og auðvelda tengsl við markhópinn.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is