Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Facebook sem markaðstæki - grunnnámskeið - fjarkennt frá EHÍ

Flokkur námskeiðs: Tölvur
Kennari: Maríanna Friðjónsdóttir, sjálfstætt starfandi fjölmiðlari
Verð kr: 18.900 -
Staður: Ísafjörður, Hólmavík, Patreksfjörður
Námskeið hefst: 27/02/2012 - Umsóknarfrestur til: 26/02/2012
Fjöldi kennslustunda: 10
Ath: Kennt mánudaginn 27. og þriðjudaginn 28. febrúar kl. 8:30-12:00

Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað.

Facebook náði á árinu 2009 að verða þriðja fjölmennasta “þjóðríki” heims og fer enn stækkandi. Facebook er stærsti samfélagsvefur heimsins og farvegur örrar þróunar nýrrar tegundar markaðssetningar - Social Media Marketing eða Markaðssetningar á samfélagsvefjum.

Facebook býður upp á sérstakar aðferðir og uppsetningu til að kynna fyrirtæki, vörur og þjónustu t.d. með uppsetningu sérstakra síðna, sem eru strax aðgengilegar í Google leitarvélinni, ásamt markvissri markaðssetningu auglýsinga. Þeir sem hyggja á markaðssetningu á Facebook síðum þurfa að kunna skil á mörgum nýjum hugtökum, aðferðafræði og tækni. Á þessu grunnnámskeiði er fyrst og fremst farið í rétta, tæknilega uppbyggingu Facebook síðunnar, þannig að hún nýtist sem allra best í samskiptum við markaðinn. Inn í tæknilegar leiðbeiningar er fléttað hugtökum og aðferðum markaðssetningar á samfélagsvefjum.

Farið er yfir allar grunnstillingar og uppsetningar. Farið yfir hvaða meginreglur gilda til að síðan nái sem mestum og víðtækustum áhrifum. Farið er yfir “tips og tricks”. Skoðað verður hver er munurinn á “venjulegri” facebook síðu og síðum sem gegna markaðshlutverki. Auglýsingar fyrir samskiptanetið eru skoðaðar sérstaklega og þá rætt um markvissa uppsetningu, orðaval og markhópa. Námskeiðið endar á örstuttri kynningu á auglýsingahlið FB.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu með þráðlausi netkorti á námskeiðið. Vinsamlega athugið að nauðsynlegt er að þátttakendur hafi þegar stofnað persónulega Facebook síðu þegar námskeiðið hefst.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is