|
||||
|
|
Færni í ferðaþjónustu II er sjálfstætt framhald af Færni í ferðaþjónustu I. Námið er kennt samkvæmt námsskrá frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og haldið í samvinnu við Ferðamálasamtök Vestfjarða.
Um er að ræða 100 kennslustunda nám fyrir starfsmenn í ferðaþjónustu eða þá sem stefna að starfi í greininni, þar á meðal sumarstarfsfólki. Náminu er ætlað að efla færni starfsmanna til að sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum á ýmsum sviðum ferðaþjónustu.
Meðal námsþátta eru tungumál, tölvur, tjáning og framkoma, vinnubrögð og vinnuvernd, umhverfismál í ferðaþjónustu, samfélags– og staðarþekking, fyrsta hjálp, val um sérsvið og lokaverkefni.
Námskeiðið stendur yfir virka daga á tímabilinu 11. til 27. maí og er kennt frá kl. 9:00 til 16:00.
Hafi fólk utan norðanverðra Vestfjarða áhuga á að taka námskeiðið býðst þeim gisting og aðgangur að góðri eldunaraðstöðu á Hótel Núpi á meðan námskeiðið stendur yfir.