Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Færni í ferðaþjónustu II

Flokkur námskeiðs: Námsleiðir FA
Kennari: Ýmsir.
Verð kr: 17.000 -
Staður: Ísafjörður - Hólmavík - Patreksfjörður
Fjöldi kennslustunda: 100
Ath: Hefst í nóvember 2011 eða þegar lágmarksþátttöku er náð. Kennt verður á laugardögum.

Færni í ferðaþjónustu II er sjálfstætt framhald af Færni í ferðaþjónustu I. Um er að ræða 100 kennslustunda nám fyrir starfsmenn í ferðaþjónustu eða þá sem stefna að starfi í greininni, þar á meðal sumarstarfsfólk. Náminu er ætlað að efla færni starfsmanna til að sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum á ýmsum sviðum ferðaþjónustu.

Meðal námsþátta eru tungumál, tölvur, tjáning og framkoma, vinnubrögð og vinnuvernd, umhverfismál í ferðaþjónustu, samfélags– og staðarþekking, fyrsta hjálp, val um sérsvið og lokaverkefni.

Haldið í samvinnu við Ferðamálasamtök Vestfjarða.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is