Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Færni - tölvunámskeið fyrir lesblinda - Hólmavík

Flokkur námskeiðs: Tölvur
Kennari: Snævar Ívarsson frá Félag lesblindra á Íslandi
Verð kr: 21.300 -
Staður: Hólmavík
Fjöldi kennslustunda: 13
Ath: Kennt í í nóvember 2010. Lágmarksfjöldi 10 þátttakendur.

Námskeið frá Félagið lesblindra. Námskeið fyrir lesblinda og aðra sem vilja nýta sér tækni við lestur og skrift.

Námskeiðið miðar að því að kynna fyrir nemendum þau verkfæri sem geta nýst lesblindum og öðrum við lestur og skrift með það að markmiði að auka færni. Námskeiðið er sérlega hagnýtt og nýtist jafnt heima sem og í starfi. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlast öryggi og færni í notkun helstu verkfæra (hugbúnaða) sem í boði eru. Má þar nefna hugbúnað sem les af tölvuskjám, fylgiforrit Windows (Office), upplestrarhugbúnaður, tölvupóstur, stafrænar myndavélar, hljóðupptökutæki og talgreinir. Námskeiðið hentar jafnt fyrir byrjendur og lengra komna en leiðbeinandi hefur mikla reynslu af því að vinna með einstaklingum sem hafa litla eða enga reynslu af því að vinna með tölvur.

Allir nemendur fá námsefni sem hjálpar þeim að rifja upp að loknu námskeiði. 

Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is