Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Fiskeldi

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Jón Gunnar Schram, fiskeldisfræðingur.
Verð kr: Samtals 45.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 22/10/2010 - Umsóknarfrestur til: 22/10/2010
Fjöldi kennslustunda: 60
Ath: Kennt verður kl. 16:20 – 20:00 föstudagana 22. og 29. október og 5. og 12. nóvember. Eftir áramót verða tvær kennslulotur.

Fræðslumiðstöð Vestfjarða, í samstarfi við Hraðfrystihúsið Gunnvöru og Hólaskóla, fékk Jón Gunnar Schram fiskeldisfræðing, til að taka saman 60 kennslustunda námsskrá um fiskeldi. Námsskráin var unnin með styrk frá Starfsmenntaráði. Verður námsskráin tilraunakennd í vetur.
Námskeiðsgjald er 15 þúsund fyrir áramót og 30 þúsund eftir áramót.

Námið er einkum ætlað fólki sem hefur stutta skólagöngu að baki og vinnur í fiskeldi eða hefur áhuga á því. Í námsskránni er fjallað almennt um fiskeldi, fiskalíffræði, fisksjúkdóma og dagleg störf í fiskeldi. Hluti námsskrárinnar er verklegt nám í fiskeldisstöðvum.

Kennt verður kl. 16:20 – 20:00 föstudagana 22. og 29. október og 5. og 12. nóvember. Eftir áramót verða tvær kennslulotur og stendur hvor um sig yfir síðdegis á föstudegi og laugardegi. Að auki þurfa þátttakendur að fara í tvær heimsóknir í fiskeldisstöðvar.

Athugið að námskeiðinu hefur verið seinkað um eina viku frá fyrri auglýsingu.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is