|
||||
|
|
Fiskur og ferðaþjónusta er 300 kennslustunda nám samkvæmt námskrá frá Fræðslumiðstöð atvinnulífisins.
Tilgangur námsins er að auka færni starfsmanna í ferðaþjónustu þar sem afkoman byggist á nýtingu sjávar og ferskvatns, efla faglegt stolt og jákvæðni. Í náminu er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra, afla og miðla upplýsingum og að þeir efli sjálfstraust sitt og lífsleikni.
Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til styttingar náms í framhaldsskóla til allt að 24 einingum. Meta má námið á móti 12 einingum í vali, 12 einingum á kjörsviði og/eða til almennra greina eftir styrkleika viðkomandi einstaklings.
Námið verður kennt á daginn - en endanleg tímasetning verður auglýst síðar.