Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Fjölbreytilegar matsaðferðir í fullorðinsfræðslu

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Guðmunda Kristinsdóttir hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 18/08/2011 - Umsóknarfrestur til: 18/08/2011
Fjöldi kennslustunda: 7
Ath: Kennt fimmtudaginn 18. ágúst kl. 9:30 – 15:00.

Á námskeiðinu verður rætt um hverju við stöndum frammi fyrir í framhaldsfræðslunni hvað varðar námsmat, þ.e. hvernig getum við tryggt að hugmyndafræði fullorðinsfræðslunnar og starfsfræðslu sé virt þegar matsaðferðir eru valdar? Hvernig getum við stuðlað að því að þær matsaðferðir sem valdar eru njóti trausts hagsmunaaðila s.s. vinnumarkaðarins og viðtökuskóla. Hvaða aðferðir getum við notað sem uppfylla ofangreint en eru einnig framkvæmanlegar á hagkvæman hátt (tími/fjármagn)?

Þessum spurningum verður varla svarað til fullnustu en sameiginlega ættu þátttakendur á námskeiðinu að nálgast lausnir. Leiðbeinandi leggur fram dæmi um matsaðferðir og það gera þátttakendur líka. Seinni hluti námskeiðsins er n.k. vinnustofa þar sem þátttakendur vinna saman að því að finna matsaðferðir sem henta í þeirra eigin kennslu.

Námskeiðið er frítt og öllum opið, en nauðsynlegt er að skrá sig. Fræðslumiðstöðin hvetur alla þá sem koma að kennslu fullorðinna og aðra sem hafa áhuga á fullorðinsfræðslu til að nota þetta tækifæri til að auka við þekkingu sína og deila reynslu sinni með öðrum.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is