Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Fjölmiðlasamskipti og framkoma

Flokkur námskeiðs: Atvinnulífið
Kennari: Teitur Þorkelsson, ráðgjafi og fyrrverandi fréttamaður, og Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir, fréttamaður, Ísland í dag
Verð kr: 32.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafjörður
Námskeið hefst: 07/05/2010 - Umsóknarfrestur til: 02/05/2010
Fjöldi kennslustunda: 15
Ath: Kennt föstud. 7. og laugard. 8. maí kl. 10:00-16:00. Lágmarksfjöldi 12 þátttakendur.

Haldið í samstarfi við Vaxtarsamning Vestfjarða. Námskeið fyrir alla þá sem þurfa að koma sér á framfæri í fjölmiðlum hvort sem það eru eigendur eða forsvarsmenn fyrirtækja eða stofnana, fólk í stjórnmálum, félagasamtökum eða aðrir.

Fjallað verður um grundvallaratriði í samskiptum við blaðamenn og fjölmiðla. Meðal þess sem farið verður í er hvernig á að sannfæra fjölmiðla um að hugmynd eða ákveðið efni sé áhugavert umfjöllunarefni, hvernig er rétt að hegða sér í viðtölum og koma fram í sjónvarpi og hver eru algengustu mistökin í samskiptum við fjölmiðla.

Aðalkennari á námskeiðinu er Teitur Þorkelsson framkvæmdastjóri Framtíðarorku ehf. Hann er heimspekingur og blaðamaður að mennt, með meistarapróf í alþjóða öryggismálum og alþjóðalögum með áherslu á sviði endurnýjanlegrar orku. Teitur hefur starfað sem fréttamaður á Íslandi og sem talsmaður fyrir bæði breska sendiráðið á Íslandi og alþjóðlega vopnahléseftirlitið á Sri Lanka, auk þess að reka fjölmiðlaherferðir fyrir fyrirtæki og félagasamtök. Síðan 2006 hefur Teitur unnið að þekkingarmiðlun, ráðgjöf og innleiðingu nýjunga á sviði endurnýjanlegrar orku fyrir samgöngur, auk þess að stýra fjölmiðlaherferðum og þjónusta erlenda fjölmiðla á Íslandi.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is