Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Framabraut - menntaverkefni í samstarfi við Impru

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Guðlaug Bjarnadóttir, Guðrún Stella Gissurardóttir, Haukur Vagnsson o.fl.
Verð kr: 20.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Ísafirði
Námskeið hefst: 29/09/2008 - Umsóknarfrestur til: 26/09/2008
Fjöldi kennslustunda: 75
Ath: Kennt mánudaga kl. 18.00 - 22.00 (12 skipti).

Framabraut er þrískipt nám sem ætlað er konum með ýmiskonar bakgrunn úr atvinnulífinu, en ekki er gerð krafa um að þátttakendur hafi lokið formlegri menntun. Náminu er ætlað er að styrkja konur á vinnumarkaði og hvetja þær til að greina möguleika sína og styrk til að takast á við ný verkefni. Námið á bæði erindi við konur sem vilja efla sig í núverandi starfi og þær sem auka vilja möguleika sína á að skipta um starfasvettvang. Í fyrsta námsáfanga er lögð áhersla á að byggja upp sterka sjálfsmynd og öðlast aukið sjálfstraust til að takast á við nýja færni í námi og starfi. Meðal þess sem farið verður í eru samskipti og samskiptatækni, starfsánægja, markmiðasetning og samningatækni. Einnig læra þátttakendur að gera ferilskrá. Í öðrum áfanga er farið í almenna tölvunotkun, word, excel, Netið og tölvupóst. Í
þriðja áfanga verða sérhæfð námskeið í samráði við þátttakendur.

Haldið í samstarfi við Impru á Nýsköpunarmiðstöð.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is