Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Framsögn og tjáning á Hólmavík

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Skúli Gautason, leikari.
Verð kr: 5.000 -
Staður: Grunnskólinn á Hólmavík
Námskeið hefst: 07/03/2008 - Umsóknarfrestur til: 06/03/2008
Fjöldi kennslustunda: 15
Ath: Kennt helgina 7.-9. mars 2008

Námskeið í framsögn og tjáningu fyrir nemendur Grunnmenntaskólans og aðra áhugasama.

Námsmarkmið eru að þátttakendur;
· auki færni sína í að þora að standa upp og taka til máls fyrir framan hópinn.
· séu færir um að láta skoðun sína í ljós fyrir framan hóp samnemenda sinna.
· séu færir um að taka gagnrýni frá hópnum.

Námslýsing:
Námsmenn þjálfa helstu atriði munnlegrar tjáningar, framkomu í ræðustóli og hæfni í
skoðanaskiptum. Einnig að gagnrýna aðra og taka gagnrýni. Unnið er áfram með
námsþáttinn í verkefnavinnu.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is