Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Fuglar

Flokkur námskeiðs: Atvinnulífið
Kennari: Böðvar Þórisson fuglafræðingur á Náttúrustofu Vestfjarða
Verð kr: 6.000 auk aksturs -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða
Námskeið hefst: 16/05/2008 - Umsóknarfrestur til: 17/05/2008
Fjöldi kennslustunda: 9
Ath: Tími: Föstudagur 16. maí, kl. 20 - 22 og laugardagur 17. maí, kl. 10 - 14.

Námskeiðið er einkum ætlað fólki í ferðaþjónustu sem tekur á móti gestum, sem áhugasamir eru um fugla og fuglaskoðun. Námskeiðið hentar þó einnig öðru áhugafólki um fugla.

Efni námskeiðsins verður um íslenska varpfugla og farfugla sem fara hér um. Farið í greiningar á nokkrum tegundum, búsvæði, hvar og hvenær ákveðnar tegundir er best að sjá. Einnig verður farið í stofnstærðir ákveðna tegunda, lög, reglur og alþjóðlegar samþykktir. Að lokum farið í vettvangsferð á Ísafirði eða nágrenni Ísafjarðar.

Á föstudagskvöldið verður fyrirlestur hjá Fræðslumiðstöðinni að Suðurgötu 12 á Ísafirði. Þar verður farið í:
· Íslenskir varpfuglar – fjöldi og tegundir
· Umferðarfuglar
· Flækingar
· Greining á fuglum, sjón og heyrn
· Búsvæði fugla
· Tímabil: vetur, vor, varptími, ungar, haust,
· Tæki: kíkir, fuglabók og feltbók. Fuglahljóð á spólum.
· Lög og reglur varðandi fugla.

Á laugardaginn verður farið í vettvangsferð. Mæting hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða.

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Ferðamálasamtök Vestfjarða.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is