Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Fyrirlestrar um menningararfinn

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Ýmsir
Verð kr: 1.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði. Fleiri staðir í fjarfundi ef mögulegt er.
Fjöldi kennslustunda: 2
Ath: Áætlað er að fyrirlestrarnir verði kl. 17:00 þriðja fimmtudag hvers mánaðar.

Fræðslumiðstöð Vestfjarða, í samstarfi við Fornleifastofnun Íslands, Vestfirði á miðöldum, Minjavörð Vestfjarða og hugsanlega fleiri aðila, hyggst taka upp þá nýbreytni í vetur að gangast fyrir röð fyrirlestra undir heitinu Menningararfurinn

Fyrirlestrarnir verða bæði um þær rannsóknir sem nú eru stundaðar á Vestfjörðum í fornleifafræði og öðrum tengdum greinum, svo sem hvað eru fornleifar, eru allar fornleifar mikilvægar? Hvað geta mannabein, dýrabein, plöntur og skordýr sagt okkur um fortíðina? Hvað segja örnefni, gamlar ferðabækur og landakort okkur?

Áætlað er að fyrirlestrarnir verði þriðja fimmtudag hvers mánaðar.
Næsti fyrirlestur verður þó fimmtudaginn 2. desember nk.

Fyrirlestrarnir eru sendur út í gegnum fjarfundabúnað og er hægt að sækja þá þar sem Fræðslumiðstöðin hefur aðgang að slíkum búnaði.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is