Kennari: Sigurður Arnfjörð, framreiðslumeistari (þjónn).
Verð kr: 7.500 -
Staður: Ýmsir
Námskeið hefst: 01/07/2008 - Umsóknarfrestur til: 01/09/2009
Fjöldi kennslustunda: 4
Ath: Á Núpi og á Þingeyri í lok janúar og í byrjun febrúar á Ísafirði.
Námskeið í að bera sig rétt að við uppádekkun borða þegar veisla stendur til.
Farið er í hvernig dekka á borð rétt, hvaða hnífapör á að nota, hvernig á að brjóta dúka og servíettur, hvaða vín á að nota, hvort aðferðin á að vera frönsk – ensk – amerísk eða rússnesk og ekki síst rétt framsetning.
Tilvalið námskeið fyrir saumaklúbba og hópa, einnig fyrir þá sem starfa í þjónustuhlutverkum eða bara til að læra að setja upp fallegt borð.
Námskeiðið verður haldið á Núpi, Þingeyri og Ísafirði og ef til vill víðar ef áhugi reynist vera fyrir hendi.