Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Grasalækningar og íslenskar lækningajurtir - fjarnámskeið frá EHÍ

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Anna Rósa Róbertsdóttir, B.Sc., Dip.Phyt, MNIMH grasalæknir
Verð kr: 5.900 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 17/02/2010 - Umsóknarfrestur til: 18/02/2010
Fjöldi kennslustunda: 3
Ath: Kennt miðvikudaginn 17. febrúar kl. 20:15 - 22:15

Námskeið í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Á námskeiðinu fjallar Anna Rósa Róbertsdóttir, grasalæknir almennt um grasalækningar og íslenskar lækningajurtir. Rætt verður um hvernig grasalæknir vinnur, hvað sjúkdóma algengt er að grasalæknir fáist við og hvernig unnið er úr lækningajurtum.

Farið verður yfir áhrifamátt nokkurra algengra íslenskra lækningajurta sem auðvelt er fyrir leikmenn að finna og tína. Fjallað verður m.a. um vallhumal, ætihvönn, maríustakk, mjaðjurt, blóðberg, birki, túnfífil, klóelftingu, haugarfa og fjallagrös. Einnig verða gefin dæmi um einfaldar uppskriftir og skammtastærðir. 

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is