Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Grunnmenntaskóli

Flokkur námskeiðs: Námsleiðir FA
Kennari: Ýmsir
Verð kr: 52.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 19/01/2010 - Umsóknarfrestur til: 18/01/2010
Fjöldi kennslustunda: 300
Ath: Kennt mánud. - fimmtud. kl. 13:00. Hefst 19. janúar. Opinn kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 13. janúar kl. 20:00

Grunnmenntaskóli er kenndur samkvæmt námsskrá frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Um er að ræða 300 kennslustunda nám sem ætlað er fullorðnu fólki á vinnumarkaði, eldra en 20 ára og með stutta formlega skólagöngu.

Tilgangur skólans er að stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til áframhaldandi náms og auðvelda þeim að takast á við ný verkefni í vinnu. Í náminu er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni.

Líklegt er að kennsla verði eftir hádegi en nánari tímasetning verður auglýst síðar.

Grunnmenntaskólinn byggir á eftirfarandi námsþáttum:


NámsþátturKst
Kynning5
Sjálfsstyrking og samskipti20
Námstækni10
Íslenska55
Framsögn og ræðumennska15
Enska40
Stærðfræði40
Tölvu- og upplýsingatækni40
Þjónusta10
Verkefnavinna25
Náms- og starfsráðgjöf15
Færnimappa20
Mat á námi og skólastarfi5
Samtals300

Opinn kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 13. janúar kl. 20:00.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is