Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Grunnmenntaskólinn - Ísafjörður

Flokkur námskeiðs: Námsleiðir FA
Kennari: Ýmsir
Verð kr: 54.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 07/10/2010 - Umsóknarfrestur til: 04/10/2010
Fjöldi kennslustunda: 300
Ath: Kennt þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17.30 - 20.30. Hefst fimmutdaginn 7. október.

Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustunda nám sem skipt er á þrjár annir. Námið hentar vel þeim sem hafa litla formlega menntun eða hafa ekki verið í námi lengi en vilja komast af stað.

Þeir þættir sem teknir eru fyrir í Grunnmenntaskólanum eru sjálfstyrking og samskipti, námstækni, íslenska, framsögn og ræðumennska, enska, stærðfræði, tölvu- og upplýsingatækni, þjónusta, náms- og starfsráðgjöf og gerð færnimöppu.

Hægt er að lesa meira um Grunnmenntaskólann á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins www.frae.is.

Verð er 18.000 kr. fyrir önnina, 54.000 kr. fyrir námið í heild.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is