Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Grunnmenntaskólinn - Reykhólar eða Saurbær

Flokkur námskeiðs: Námsleiðir FA
Kennari: Ýmsir
Verð kr: 54.000 -
Staður: Reykhólar eða Saurbær í Dölum
Fjöldi kennslustunda: Óákveðið
Ath: Hefst í nóvember 2010 eða janúar 2011 og tekur þrjár annir. Kennt utan hefðbundins vinnutíma.

Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustunda nám sem skipt er á þrjár annir. Námið hentar vel þeim sem hafa litla formlega menntun eða hafa ekki verið í námi lengi en vilja komast af stað.

Þeir þættir sem teknir eru fyrir í Grunnmenntaskólanum eru sjálfstyrking og samskipti, námstækni, íslenska, framsögn og ræðumennska, enska, stærðfræði, tölvu- og upplýsingatækni, þjónusta, náms- og starfsráðgjöf og gerð færnimöppu.

Hægt er að lesa meira um Grunnmenntaskólann á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins www.frae.is

Verð er 18.000 kr fyrir önnina, 54.000 kr. fyrir námið í heild.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is