|
||||
|
|
Google er vinsælasta leitarvél í heimi. En Google er mikið meira en leitarvél því fyrirtækið hefur verið í framvarðarsveit við að þróa samskipta- og samvinnuhætti 21. aldarinnar. Verkfæri í gullakistu Google geta orðið að töfratækjum í höndum þeirra sem kunna með að fara, undir kjörorðinu “meira fyrir minna”.
Verkfærin í Google eru ókeypis; Word, excel, powerpoint og önnur tól sem auka samskipti og samvinnu á einfaldan og fljótan hátt. Gmail er kjarni verkfærapakkans sem tengir vinnslu sameiginlegra verkefna, skipulag, hópavinnu og uppsetningu heimasíðna fyrir sérverkefni eða hópa. Á námskeiðinu opnast gullakista Google upp á gátt. Stefnt er að grunnfærni í algengustu verkfærunum; Gmail, calender, documents og sites. Saman mynda verkfærin grunn fyrir aukin samskipti, hraðari vinnubrögð og aðkomu fleiri aðila í námi og starfi.
Námskeiðið hentar vel kennurum sem vilja efla hópavinnu með samvinnu nemenda, kennara og jafnvel foreldra. Námskeiðið er einnig upplagt fyrir opinberar stofnanir, félagasamtök og fyrirtæki sem vilja flytja samskiptin yfir á ódýrari og skilvirkari vettvang.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu með þráðlausu netkorti á námskeiðið.
Námskeiðið er kennt í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntun Háskóla Íslands.