|
||||
|
|
Haldið af Landbúnaðarháskóla Íslands í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Veislu að Vestan. Á námskeiðinu verður framleiðsla einstakra ostategunda skoðuð, til að fá tilfinningu fyrir hver er munur á framleiðslu á t.d. skyri, brauðosti, gráðaosti og smurostum og hvað þarf til. Gerðar verklegar tilraunir/sýnikennsla með einfalda framleiðslu. Þá verður rætt um tæki, tól og aðstöðu, sem þarf fyrir hverja ostategund.
Tekið er við skráningu hjá Landbúnaðarháskólanum á eða í síma 843 5302 / 433 5000 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími). Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 2000 kr (óafturkræft) á reikninginn 1103-26-4237, kt. 411204-3590. Senda staðfestingu á netfangið .
Einstaklingar á lögbýlum eiga möguleika á að sækja um styrk hjá Starfsmenntasjóði bænda (www.bondi.is)