Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Heklaðir skartgripir - Hólmavík

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Rósa Hlín Ingólfsdóttir
Verð kr: 10.500 -
Staður: Hólmavík
Fjöldi kennslustunda: 3
Ath: Verður kennt í janúar 2012.

Námskeið fyrir þá sem langar að hekla eigin skartgripi. Sýndir verða heklaðir hringar, eyrnalokkar, armbönd, hálsmen, hárbönd og ýmislegt til þess að festa á spennur og spangir. Innifalið í verði eru ýmsar uppskriftir og hugmyndir. Þátttakendur þurfa að mæta með heklunálar nr 1,5 og 2 og fallegt garn sem hentar í skartgripagerð, ekki of gróft og ekki of fínt, helst eitthvað sem er frekar stíft.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is